Innanhússmálun

Málarar 250 Lita bjóða upp á vandvirk vinnubrögð við innanhúsmálun. Hvort sem að það eru gipsveggir eða steinveggir, nýmálun eða endurmálun þá hafa málarar 250 Lita þá þekkingu og reynslu sem þarf til að skila vel af sér.

Við nýmálun þá koma málarar okkar að heilspörtlun veggja og lofta fyrir málun en við endurmálun þá er meira um viðgerðir á sem dæmi naglagötum og sprungum hvort sem að það er í veggnum eða lofti.

Nú upp á síðkastið hafa málarar okkar einnig verið að taka að sér allskins skreytingar fyrir viðskiptavini sína.
Þar má nefna sem dæmi Merki/logo, texta, eða munstur sem er þá málað eftir annað hvort stenslum, myndvarpa eða eftir teikningu.

Þegar að það kemur að gluggamálun hvort sem utan eða inn þá krefst hún mikillar vandvirkni og alúðar, ekki bara til að gluggarnir lítu vel út á eftir heldur einnig til að vinnan skili sér það vel að það málningin haldi styrk.
Málarar okkar leggja mikla áherslu á þetta vinnu sína og vanda einnig sérstaklega valið á efni svo að það eigi sem best við hverju sinni.

Hafi endilega samband við málara okkar í síma 897 8250 og fáið meiri upplýsingar og ráðgjöf varðandi innanhúsmálun.